|
|||
![]() |
|||
2015-07-02 11:22:19 CEST 2015-07-02 11:22:58 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Stækkun á erlendri skuldabréfaútgáfuÍslandsbanki hefur stækkað skuldabréfaútgáfu sína að fjárhæð 150 m. sænskra króna á gjalddaga 13. febrúar 2019. Heildarstærð flokksins verður nú 600 m. sænskar krónur. Skuldabréfið sem er til fjögurra ára ber fljótandi vexti, 310 punkta ofan á þriggja mánaða Stibor en viðbótarútgáfan var seld á verðinu 101,99. Kaupendur voru fjárfestar frá Skandinavíu. Skuldabréfið er skráð í Kauphöllina á Írlandi. Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/ Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752. Upplýsingafulltrúi - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1933504] |
|||
|