2013-11-06 14:58:38 CET

2013-11-06 14:59:40 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fljótsdalshérað - Fyrirtækjafréttir

Fljótsdalshérað – Fjárhagsáætlun 2014 – 2017


Tillaga að fjárhagsáætlun ársins 2014 - 2017 var samþykkt á fundi  bæjarráðs
Fljótsdalshéraðs  þann 23. október 2013 og er til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs þann 6. nóvember.  Jafnframt er lögð fram 3ja ára áætlun fyrir
árin 2015-2017.   Áætlað er að seinni umræða um fjárhagsáætlunina fari fram á
fundi bæjarstjórnar þann 20. nóvember 2013. 



Helstu markmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:

  -- Jafnvægi skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta
     á hverju þriggja ára tímabili.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður afgangur af
     rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.



  -- Framlegð rekstrar (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera
     á bilinu 15 - 20%.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður
     framlegðarhlutfall A-hluta 17,5% og í samstæðu A og B hluta 22,5%.



  -- Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur
     afborgunum og vöxtum af langtímalánum.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 mun veltufé frá
     rekstri nema 562 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 412
     millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri um
     362 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 312 millj. kr.



  -- Skuldir og skuldbindingar samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af
     heildartekjum.

           Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2014 verður
skuldaviðmið samstæðu A og 
           B hluta skv reglugerð 221%. Hjá A hluta verður skuldaviðmið 170% í
árslok 2014. 
           Skuldahlutfall  A-hluta verður 174% og samstæðu A og B hluta um 253%
í árslok 2014. 

          Árið 2017 verður skuldaviðmið A hluta um 138% og í samstæðu A og B
hluta er áætlað að 
          skuldahlutfallið nemi um 177%.  Skuldahlutfall A hluta verður 141% og
skuldahlutfall 
          samstæðu A og B hluta verður 203% í árslok 2017.



  -- Skuldaviðmið samstæðu A og B hluta mun árið 2021 fara niður fyrir 150% skv
     langtímaáætlun.  Áætlað er að skuldaviðmið A hluta fari niður fyrir 150%
     árið 2016.





Lögð hefur verið mikil áhersla á að framagreind viðmið séu tekin alvarlega við
vinnu fjárhagsáætlana undanfarin ár og áætlun 2014 byggir á þeim forsendum. 
Slík aðlögun er liður í því að styrkja rekstur sveitarfélagsins og treysta enn
frekar fjárhagslega stöðu þess til að gera það betur í stakk búið til að mæta
þörfum íbúa á næstu árum.. 



Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að verja 1.500 millj.
kr. í byggingu á nýju hjúkrunarheimili á Egilsstöðum.  Samningar liggja fyrir
við Velferðarráðuneyti um þátttöku ríkissjóðs í 85% af byggingarkostnaði sem
greiðist í formi leigu næstu 40 árin.  Jafnfram er fyrirliggjandi samningur við
Heilbrigðisstofnun Austurlands um daglegan rekstur á hjúkrunarheimilinu þegar
starfsemi hefst í nýju húsnæði í ársbyrjun 2015. 

Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og búa öldruðum þar með þá
umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA. 





Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri