2009-04-03 18:43:59 CEST

2009-04-03 18:45:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

- INNLÁN STRAUMS FÆRÐ TIL ÍSLANDSBANKA


Íslandsbanki hf. hefur yfirtekið skuldbindingar Straums-Burðaráss
fjárfestingabanka hf. (Straumur) vegna innlána í höfuðstöðvum bankans á
Íslandi. Undanskilin eru innlán sem stofnað var til í tengslum við uppgjör
eldri skulda fyrir gjalddaga. Sem endurgjald fyrir hinar yfirteknu
innlánsskuldbindingar hefur Straumur gefið út skuldabréf með veði í eignum
bankans. Þá hefur Straumur tryggt sér aðgang að nægu lausu fé til að standa við
skuldbindingar gagnvart eigendum innlána í útibúi bankans í Danmörku; þau
innlán verða greidd á réttum gjalddögum. Með þessari ráðstöfun er óvissu um
hagsmuni innlánseigenda eytt og jafnræðis gætt. 

Nánari upplýsingar veitir:

Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
S: +354 585 6707
georg@straumur.com