2013-06-13 13:45:00 CEST

2013-06-13 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 13 0916:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.400 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 4.400 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,209 (flatir
vextir 3,19%). 

RIKV 13 1216:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.670 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.370 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,324 (flatir
vextir 3,39%).