2011-04-29 18:18:52 CEST

2011-04-29 18:19:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Ársreikningur

Uppgjör Nýherja hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2011


Helstu niðurstöður fyrir fyrsta ársfjórðung 2011



  -- EBITDA var 160 mkr á fyrsta ársfjórðungi 2011, en var 35 mkr á sama
     tímabili árið á undan.
  -- Heildarhagnaður nam 64 mkr en 130 mkr tap var á fyrsta ársfjórðungi 2010.
  -- Ágæt afkoma var af rekstri erlendra dótturfélaga og batnaði EBITDA þeirra
     um 52 mkr milli ára.
  -- Nýtt skipulag fyrir innlenda starfsemi Nýherjasamstæðunnar tók gildi 1.
     apríl 2011.
  -- Mikil eftirspurn er eftir hugbúnaðarráðgjöf og góð verkefnastaða
     hugbúnaðarráðgjafa.


Þórður Sverrisson, forstjóri:

„Starfsemi Nýherja gekk vel í fyrsta ársfjórðungi og var rekstur og afkoma í
meginatriðum samkvæmt áætlun og nam EBITDA 160 mkr á tímabilinu. Afkoma
erlendrar starfsemi var ágæt og nam EBITDA 55 mkr samanborið við 3 mkr á
síðasta ári. 

Með breytingum á skipulagi innlendrar starfsemi, sem tók gildi 1. apríl
síðastliðinn, skapast tækifæri til að ná auknum slagkrafti í rekstri
samstæðunnar með færri og sterkari einingum, þannig að mæta megi betur
síbreytilegum þörfum viðskiptavina okkar.”