2016-02-11 12:10:47 CET

2016-02-11 12:10:47 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Landsnet hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Landsnets hf. 2015


Hagnaður ársins 4 milljarðar króna - niðurgreiðsla skulda 7 milljarðar


Helstu atriði ársreiknings:



  -- Rekstrartekjur námu 16.183 mkr. árið 2015 á móti 14.350 mkr. árið áður sem
     er 12,8% hækkun og skýrist af hagstæðri gengisþróun.
  -- Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 7.491 mkr. samanborið 6.174
     mkr. árið áður. Hækkunin er um 1.317 mkr. á milli ára og skýrist einnig af
     hagstæðri gengisþróun.
  -- Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 4.010 mkr. á árinu
     2015 samanborið við 3.762 mkr. hagnað á árinu 2014.
  -- Greiddar voru niður langtímaskuldir umfram reglulegar afborganir sem nam um
     6.895 mkr.
  -- Lausafjárstaða félagsins er sterk, handbært fé í lok árs nam 8.072 mkr. og
     handbært fé frá rekstri á árinu nam 8.113 mkr.
  -- Á árinu voru rekstrarfjármunir félagins endurmetnir samkvæmt alþjóðlegum
     reikningsskilastöðlum en rekstrarfjármunir voru síðast endurmetnir á árinu
     2008.





Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri:

„Rekstur Landsnet gekk vel árið 2015, þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður og
tjón af völdum óveðurs. Hagnaður var ríflega fjórir milljarðar króna á móti
tæplega 3,8 milljörðum árið 2014. Hagnaður fyrir fjármagnsliði hækkaði um 1,3
milljarða króna milli ára og skýrist að langmestum hluta af hagstæðri
gengisþróun. Meirihluti tekna félagsins er í dollurum og staða hans sterk. Þá
var ráðist í niðurgreiðslu skulda upp á sjö milljarða króna á árinu til draga
úr fjármagnskostnaði. Jákvæð þróun er í rekstrarumhverfi Landsnets með nýrri
reglugerð sem tryggir tekjustofn fyrirtækisins til framtíðar. Í framtíðinni
verður rekstur fyrirtækisins gerður upp í Bandaríkjadölum (USD) sem metinn
hefur verið starfrækslugjaldmiðill félagsins. Það skapar tækifæri til að
fjármagna Landsnet á hagstæðari lánakjörum en félagið hefur búið við til þessa
og draga úr rekstraráhættu. Árið 2015 er því það síðasta sem ársreikningur
félagsins er birtur í íslenskum krónum. 

Rekstrarfjármunir Landsnets voru endurmetnir á árinu. Endurmat á eignastofni
félagsins eykur gagnsæi í rekstrinum og er verðmæti fastafjármuna Landsnets nú
í samræmi við verðlagsbreytingar, mat á kostnaði við endurbyggingu kerfisins og
eignastofn sem Orkustofnun notar til að ákvarða tekjuramma félagsins. Þetta er
fyrsta endurmatið á eignum Landsnets frá árinu 2008, þegar stjórn félagsins tók
ákvörðun um að það skyldi gert með reglubundnum hætti, en vegna óvissu um
arðsemiskröfu hefur endurmat ekki farið fram fyrr en nú. 

Á 10 ára afmæli Landsnets á síðasta ári fór félagið í gegnum stefnumótum með
það að markmiði að tryggja enn betur aðgengi almennings og fyrirtækja að öruggu
rafmagni, ná betri sátt um uppbyggingu flutningskerfisins og hagræðingu í
rekstrinum. Þetta er sérlega mikilvægt í ljósi þess að framundan eru
framkvæmdir með fjárfestingum upp á milljarða króna, m.a. á Norðausturlandi,
Reykjanesi og í Hafnarfirði, sem og styrking flutningskerfisins á næstu árum.
Endurskoðun á framkvæmdastefnu félagsins hefur þegar skilað árangri og veruleg
hagræðing náðist t.d. í tveimur stærstu verkefnum liðins árs, Fitjalínu 2 og
Hellulínu 1 og stóðust endurskoðaðar tíma- og kostnaðaráætlanir í þeim báðum." 





Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang
gudlaugs@landsnet.is