2009-08-27 11:55:22 CEST

2009-08-27 11:56:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Bakkavör sækir um afskráningu hlutabréfa félagsins á NASDAQ OMX ICELAND


Stjórn Bakkavör Group hf hefur í dag ákveðið að óska eftir afskráningu
hlutabréfa félagsins á NASDAQ OMX ICELAND. Skuldabréf félagsins verða áfram
skráð á markaði. Eigendur 44% hlutafjár styðja þessa ákvörðun um afskráningu
hlutabréfanna. 

Þessi ákvörðun er byggð á mati stjórnarinnar á núverandi stöðu íslensks
hlutabréfamarkaðar og óvissu með þróun hans, lítillar veltu með bréf félagsins
auk þess sem að innlendur banki ákvað nýlega að hætta viðskiptavakt með bréf
félagsins. Jafnframt fylgir mikill kostnaður skráningu bréfanna. Stjórnin telur
því að það þjóni hagsmunum hluthafa og félagsins að afskrá félagið. 

Stjórnin mun óska þess að bréfin verði afskráð hið fyrsta. Væntanleg afskráning
hefur ekki áhrif á starfsemi félagsins og eignarhald þess er óbreytt.