|
|||
![]() |
|||
2007-11-07 17:36:48 CET 2007-11-07 17:36:48 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Sparisjóður Reykjavíkur og nágr. - Árshlutareikningar- Níu mánaða uppgjör 2007Afkoma SPRON fyrstu níu mánuði ársins 2007 Hagnaður samstæðu SPRON 9,3 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 41,6% á ársgrundvelli Helstu niðurstöður fyrstu níu mánuði ársins 2007: • Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 9.279 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 41,6% á ársgrundvelli • Hreinar rekstrartekjur námu alls 15.297 milljónir króna á tímabilinu og hafa aldrei verið hærri • Vaxtamunur er 1,2% • Niðurstaða efnahagsreiknings var 219.188 milljónir króna í lok september 2007 og hafa heildareignir hækkað um 18,8% frá áramótum • Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 148.583 milljónir króna í lok september og hækkuðu um 15,8% frá áramótum • Heildarinnlán SPRON námu alls 74.625 milljónum króna og hækkuðu um 31,9% frá áramótum • Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 50,2% í lok tímabilsins • Lausafjárstaða sterk og ekki þörf á endurfjármögnun stærri lána næstu tvö árin • Eigið fé í lok september nam 35.105 milljónum króna • Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok tímabilsins var 11,6%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 27,4% Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs 2007: • Tap SPRON samstæðunnar af rekstri var 850 milljónir króna eftir skatta á þriðja ársfjórðungi sem skýrist af hræringum á fjármálamarkaði • Hreinar vaxtatekjur námu 746 milljónir króna og eru þær hærri en undanfarna ársfjórðunga • Hreinar þjónustutekjur námu 360 milljónum króna og hafa aldrei verið hærri í einum ársfjórðungi • Innlán jukust um 8,0 milljarða króna í ársfjórðungnum, eða um 12,0% • Útlán til viðskiptamanna jukust um 10,3 milljarða króna í ársfjórðungnum eða um 7,5% Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON: „Rekstur SPRON á fyrstu níu mánuðum ársins hefur gengið vel og hafa tekjur SPRON aldrei verið meiri. Afkoman á fyrstu níu mánuðum ársins er langt umfram væntingar. Grunnrekstur SPRON er að styrkjast en á móti kemur að gengishagnaður félagsins lækkaði á þriðja ársfjórðungi sem skýrist af þeim hræringum sem hafa verið á fjármálamörkuðum síðustu mánuði. Hagnaður samstæðunnar er 9,3 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins og arðsemi eigin fjár 41,6% sem er vel yfir okkar markmiðum. Horfur eru ágætar fyrir árið gerum við ráð fyrir að afkoma félagsins verði góð fyrir árið í heild og að grunnrekstur SPRON haldi áfram að styrkjast.” Frekari upplýsingar veitir Guðmundur Hauksson forstjóri SPRON í síma 550 1771. |
|||
|