|
|||
![]() |
|||
2007-11-08 12:26:17 CET 2007-11-08 12:26:17 CET Landsbanki Íslands hf. - YfirtökutilboðVarðandi tilkynningar frá Cenkos Securities plc og Close Brothers Group plcVegna tilkynninga sem birtust nú í morgun frá ensku fjármálafyrirtækjunum Close Brothers Group plc og Cenkos Securities plc varðandi hugsanlega þátttöku bankans í yfirtökutilboði í Close Brothers Group plc, vill Landsbanki Íslands hf. taka fram eftirfarandi: Landsbankinn hefur í samvinnu við enska verðbréfafyrirtækið Cenkos Securities plc átt viðræður við stjórn Close Brothers Group plc í því skyni að kanna grundvöll þess að gera yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé síðarnefnda félagsins á genginu 950 pens á hlut. Gangi viðskiptin eftir, hefur Landsbankinn í hyggju að kaupa bankastarfsemi Close Brothers Group plc en Cenkos Securities plc mun halda eftir öðrum þáttum starfseminnar. Viðræður um þessi viðskipti eru nú á frumstigi og engin vissa er fyrir því að þær muni leiða til þess að gert verði yfirtökutilboð í Close Brother's Group plc. Frekari upplýsingar veitir: Landsbanki Íslands hf. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri, sími 898 0177, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri, simi 820 6399. |
|||
|