2014-02-13 12:46:00 CET

2014-02-13 12:46:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0515 og RIKV 14 0815


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0515 og RIKV 14 0815 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0515:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.100 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 750 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,960 (flatir vextir
4,35%). 

RIKV 14 0815:

Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.680 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 3.170 m.kr. að nafnverði á verðinu 97,810 (flatir
vextir 4,50%).