|
|||
2008-09-25 17:56:14 CEST 2008-09-25 17:57:14 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Eyrir Invest ehf. - Fyrirtækjafréttir- Eyrir Invest kaupir til baka skuldabréfaflokkinn EYRI0109Eyrir Invest, kt. 480600-2150, hefur keypt til baka öll útgefin skuldabréf félagsins í flokki EYRI0109 að nafnverði 2.000 milljónir króna. Skuldabréfin bera 15,5% vexti frá útgáfudegi þann 24.janúar 2007 og eru á lokagjalddaga þann 23.janúar 2009. Bréfin eru keypt á 18,6% ávöxtunarkröfu til lokagjalddaga. Félagið mun í kjölfar viðskiptanna óska eftir afskráningu á þessum flokki skuldabréfa. Eyrir Invest er með tvo aðra flokka skuldabréfa skráða í OMX Nordic Exchange; EYRI 07 2 með lokagjalddaga í ágúst 2009 og EYRI 05 1 með lokagjalddaga í maí 2012. Eftir sem áður mun félagið birta uppgjör opinberlega samkvæmt reglum kauphallarinnar. |
|||
|