|
|||
2015-03-18 20:54:11 CET 2015-03-18 20:55:12 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf.: Aðalfundur Landsbankans 2015Aðalfundur Landsbankans vegna rekstrarársins 2014 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica 18. mars. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Á fundinum var bankaráð bankans allt endurkjörið og Tryggvi Pálsson endurkjörinn formaður. Aðalmenn eru því Tryggvi Pálsson, Danielle Pamela Neben, Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, Helga Björk Eiríksdóttir, Jóhann Hjartarson, Jón Sigurðsson og Kristján Þ. Davíðsson. Varamenn eru þau Árni G. Hauksson og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir. Fundurinn samþykkti tillögu bankaráðs um að greiddur verði arður til hluthafa vegna reikningsársins 2014 sem nemur 1,00 krónu á hlut eða um 23,7 milljarðar króna. Það samsvarar um 80% af hagnaði ársins. Útborgunardagur arðs verður 25. mars 2015. Þá samþykkti fundurinn heimild þess efnis að Landsbankinn hf. geti eignast hluti allt að 10% af nafnverði hlutafjár í bankanum. Heimild þessi gildir fram að aðalfundi Landsbankans hf. árið 2016. Ef heimildin verður nýtt þá er ráðstöfun Landsbankans hf. á þeim hlutum sem keyptir verða háð samþykki hluthafafundar. Lægsta og hæsta fjárhæð sem Landsbankinn hf. má reiða fram sem endurgjald fyrir hvern hlut skal samsvara hlutfalli á milli eigin fjár sem tilheyrir hluthöfum bankans og hlutafjár samkvæmt síðast birta ársuppgjöri eða árshlutauppgjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram. Á aðalfundi Landsbankans var Ríkisendurskoðun kosin endurskoðandi félagsins fyrir fjárhagsárið 2015. Það upplýsist einnig að Ríkisendurskoðun hefur gert samning við Grant Thornton endurskoðun ehf. um endurskoðun ársreikninga félagsins og könnun árshlutareikninga. Allar nánari upplýsingar um niðurstöður aðalfundar bankans má nálgast á www.landsbankinn.is/adalfundur Þar má finna skýrslu bankaráðs, kynningu bankastjóra og önnur gögn sem fram voru lögð á fundinum. Þá verður fundargerð einnig gerð aðgengileg á vef bankans. Nánari upplýsingar: Kolbrún Guðlaugsdóttir, pr@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679 |
|||
|