2016-10-27 17:48:56 CEST

2016-10-27 17:48:56 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Síminn hf. - Ársreikningur

Síminn hf. - Skilvirkari rekstur skilar Símanum árangri


Helstu niðurstöður í rekstri á þriðja ársfjórðungi 2016

  -- Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2016 voru 7.270 milljónir króna samanborið við
     7.555 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði EBITDA var 2.583
     milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 samanborið við 2.365 milljónir
     króna á sama tímabili 2015. EBITDA hlutfallið var 35,5% fyrir þriðja
     ársfjórðung 2016 en var 31,3% á sama tímabili 2015.
  -- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2016 var 2.154 milljónir króna samanborið
     við 2.196 milljónir króna á sama tímabili 2015.
  -- Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var 2.681 milljónir króna á
     þriðja ársfjórðungi 2016 en var 2.557 milljónir króna á sama tímabili 2015.
     Eftir vexti og skatta var handbært fé frá rekstri 2.268 milljónir króna á
     þriðja ársfjórðungi 2016 en 2.046 milljónir króna á sama tímabili 2015 og
     hækkar um 222 milljónir króna milli ára.
  -- Vaxtaberandi skuldir voru 23,4 milljarður króna í lok þriðja ársfjórðungs
     2016 en voru 24,2 milljarðar í árslok 2015. Hreinar vaxtaberandi skuldir
     voru 19,6 milljarðar króna í lok þriðja ársfjórðungs 2016.
  -- Hrein fjármagnsgjöld voru 269 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2016 en
     voru 424 milljónir króna á sama tímabili 2015. Fjármagnsgjöld voru 398
     milljónir króna, fjármunatekjur voru 109 milljónir króna og gengishagnaður
     20 milljónir króna.
  -- Eiginfjárhlutfall Símans hf. var 53,9% í lok þriðja ársfjórðungs 2016 og
     eigið fé 33,7 milljarðar króna.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Við erum stolt af árangrinum á þriðja ársfjórðungi, en rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir jókst um tæpar 220 milljónir króna milli ára. Fjarskiptamarkaðurinn
er einkar líflegur um þessar mundir og samkeppnin hörð. Góð þjónusta til
viðskiptavina og aukinn straumur ferðamanna léku lykilhlutverk í bættri afkomu
samstæðunnar milli ára. Þess utan er viðsnúningurinn frá fyrri hluta árs ekki
síst afrakstur hagræðingar innan samstæðunnar, til að mæta auknum launakostnaði
og verðlækkunum. Þannig hefur stöðugildum fækkað um 14% á árinu hjá móðurfélagi
Símans hf. Þá hafa dótturfélög verið seld og reksturinn einfaldaður, til að ná
skýrari fókus á kjarnastarfsemi og auka samkeppnishæfi. 

Virði áskrifta fyrir viðskiptavini hefur vaxið á fjarskiptamarkaðnum. Það sjá
áskrifendur Heimilispakkans, sem fjölgar ört, og eins hafa Fjölskyldu- og
Krakkakort í farsíma slegið í gegn. Upplýsingatæknieining samstæðunnar, Sensa,
mun eiga mjög gott ár. Innviðafélagið Míla mun tengja 30 þúsund heimili með
ljósleiðara fyrir árslok, en þetta átak fer fram án jarðrasks og með afar lágum
framkvæmdakostnaði. Starfsmenn samstæðunnar hafa gert vel  í rekstri hennar það
sem af er ári og rekstrarspáin er óbreytt fyrir árið í heild.“ 

Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550-6003 (orri@siminn.is)

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans s. 550-6003 (oskarh@siminn.is)