|
|||
![]() |
|||
2016-10-27 17:55:11 CEST 2016-10-27 17:55:11 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Síminn hf. - FyrirtækjafréttirSíminn hf. - Niðurstaða Hæstaréttar Íslands í máli Símans hf. gegn íslenska ríkinuHinn 13. desember 2013 tilkynnti Ríkisskattstjóri um endurákvörðun opinberra gjalda Símans hf. og Skipta hf. fyrir árið 2008 á þeim grundvelli að vaxtagjöld hefðu verið offærð í skattskilum. Um væri að ræða vaxtagjöld vegna lána sem tekin höfðu verið vegna kaupa Skipta ehf. á Símanum hf. árið 2005. Síminn hf. höfðaði dómsmál gegn íslenska ríkinu til ógildingar á þessari ákvörðun Ríkisskattstjóra með stefnu þingfestri 10. febrúar 2015. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af kröfu Símans hf. með dómi þann 26. október 2015 en Síminn hf. áfrýjaði málinu til Hæstaréttar Ísland. Í dag kom endanleg niðurstaða í málið þegar Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms og sýknaði ríkið. Síminn hf. bakfærði á árinu 2013 vaxtagjöld að fjárhæð 22,6 milljarðar króna sem tengist ágreiningi við Ríkisskattstjóra. Með því voru að fullu leyti tekin inn neikvæð áhrif á afkomu félagsins vegna framangreinds úrskurðar á því tímabili sem var til skoðunar. Þar sem Síminn hf. hefur þegar tekið fullt tillit til úrskurðar Ríkisskattstjóra í reikningsskilum félagsins hefur dómurinn ekki áhrif á afkomu Símans hf. Með dómi Hæstaréttar hefur málið verið endanlega til lykta leitt. |
|||
|