2016-10-27 18:05:06 CEST

2016-10-27 18:05:06 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Landsbankinn hf. - Árshlutareikningar

Landsbankinn hf. : Landsbankinn hagnast um 16,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2016


Afkoma Landsbankans var jákvæð um 16,4 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu
mánuðum  ársins 2016 samanborið við 24,4 milljarða  króna hagnað á sama tímabili
árið 2015.

Hreinar  vaxtatekjur  voru  26,2 milljarðar  króna  og  hækkuðu  um 4,7% á milli
tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 5,9 milljörðum króna og hækkuðu um 15% frá
sama  tímabili árið áður. Virðisbreytingar  námu 4,4 milljörðum króna samanborið
við  12,3 milljarða króna á  sama tímabili árið  áður. Aðrar rekstrartekjur námu
4,7 milljörðum  króna  samanborið  við  8,4 milljarða  króna ári fyrr og skýrist
lækkunin  aðallega  af  minni  hagnaði  af  hlutabréfum.  Arðsemi  eigin  fjár á
tímabilinu var 8,5% á ársgrund­velli samanborið við 13,5% á sama tímabili 2015.

Rekstrartekjur á fyrstu níu mánuðum ársins námu 41,2 milljörðum króna samanborið
við  50,9 milljarða króna  á sama  tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður samtals
lækkaði   um   0,4% á  milli  ára  og  er  17,6 milljarðar  króna,  þar  af  var
launakostnaður   10,4 milljarðar   og  annar  rekstrarkostnaður  7,2 milljarðar.
Heildareignir  Landsbankans  í  lok  september  voru  um  1.134 milljarðar króna
samanborið  við 1.176 milljarða  króna ári  fyrr og  hefur því efnahagur bankans
dregist  saman um  tæp 4% síðustu  12 mánuði. Landsbankinn  greiddi á  þessu ári
28,5 milljarða króna í arð í tveimur greiðslum, í apríl og  september. Þann 15.
september birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti
af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur tilgreindum endurkaupatímabilum.
Á fyrsta endurkaupatímabili  keypti Landsbankinn um 120 milljón hluti eða  0,5%
af útgefnum hlutum og nam kaupverð þeirra 1,2 milljörðum króna. Endurkaupin geta
að hámarki numið samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutfé.
Í    lok    september    var   eigið   fé   bankans   251,1 milljarður   króna.
Eiginfjárhlutfallið var 29,1% samanborið við 29,2% á sama tíma árið áður.

Steinþór  Pálsson bankastjóri segir: "Landsbankinn heldur áfram að styrkja stöðu
sína  sem  leiðandi  fjármálafyrirtæki  hér  á  landi og hefur  markaðshlutdeild
aldrei  mælst hærri en á árinu. Gæði  eigna hafa batnað  sem og fjármögnun, þökk
sé  vel  heppnuðum  skuldabréfaútgáfum  erlendis  á  árinu.  Enn  eru töluverðar
sveiflur  í einskiptisliðum, það er í virðisbreytingum á útlánum og hlutabréfum.
Ef  horft er  framhjá þessum  liðum batnar  afkoman frá  fyrra ári þar sem aðrar
tekjur hafa aukist vegna aukinna viðskipta og á sama tíma höfum við náð að lækka
rekstrarkostnað.

Landsbankinn  hefur greitt verulegar fjárhæðir í  arð til eigenda á árinu, hærri
en  nokkru sinni  fyrr. Nýtt  og hærra  lánshæfismat frá  Standard & Poor's nú í
október  staðfestir sterka stöðu bankans.  Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu
mánuði  ársins er gott og afkoma er umfram væntingar okkar. Það er ánægjulegt að
viðskiptavinir sjá sér hag í að beina viðskiptum í auknum mæli til bankans og að
traust fjárfesta á bankanum fer vaxandi."

Símafundur á ensku: Þann 28. október kl. 10:00, mun bankinn bjóða upp á símafund
á  ensku  þar  sem  farið  verður yfir helstu afkomuniðurstöður ársfjórðungsins.
Vinsamlegast   skráið   ykkur   á   símafundinn   með  því  að  senda  tölvupóst
á ir@landsbankinn.is.

Nánari upplýsingar veita:

Rúnar  Pálmason,  upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og  í  síma  410 6263 /
899 3745

Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310


[]