2014-02-28 17:59:37 CET

2014-02-28 18:00:37 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Nýherja hf. 14. mars 2014


TILLÖGUR

Tillaga um ráðstöfun jöfnunar taps

Tillaga stjórnar eins og hún kemur fram í áritum á reikninga félagsins:

„Stjórn félagsins leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa árið
2014.  Vísað er til ársreikningsins um jöfnun taps og aðrar breytingar á
eiginfjárreikningum.“ 



Tillaga um stjórnarlaun

Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 14. mars 2014 samþykkir að laun stjórnarformanns
verði kr. 375.000 á mánuði, stjórnarmanna kr. 125.000 á mánuði. 



Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. grein
hlutafélagalaga 

Aðalfundur Nýherja haldinn 14. mars 2014 samþykkir heimild til handa stjórn
félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII.
kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög.  Kaupgengi skal miða við síðasta skráða
dagslokagengi á markaði áður en samningur er gerður. 

Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir.

Með samþykkt tillögu þessarar fellur úr gildi sams konar heimild sem samþykkt
var á síðasta aðalfundi félagsins. 


Heimild til stjórnar um aukningu hlutafjár

Aðalfundur Nýherja hf. haldinn 14. mars 2014 samþykkir svohljóðandi heimild
stjórnar til aukningar hlutafjár, skv. 15.1. gr. í samþykktum félagsins: 

Stjórn félagsins er heimilt, sbr. 41. gr. hlutafélagalaga, að auka hlutafé
félagsins um allt að kr. 150 millj. með sölu nýrra hluta til nýrra hluthafa. 

Forgangsréttur hluthafa til hlutafjáraukningarinnar fellur niður sbr. 3. mgr.
34. gr. hlutafélagalaga. 

Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi bréfanna og sölureglur hverju sinni.  Skal
áskrift fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla
hlutafélagalaga. 

Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti.  Hinir nýju hlutir
skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. 

Heimild þessa getur stjórn Nýherja nýtt í einu lagi eða áföngum innan þriggja
ára frá samþykkt hennar.