2016-08-03 19:02:16 CEST

2016-08-03 19:02:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki stækkar markflokka sértryggðra skuldabréfa


Arion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa
sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. 

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 440 m. kr. á
ávöxtunarkröfunni 3,48%. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um
1.280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,40%. 
Öllum tilboðum var hafnað í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 að þessu sinni.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.780 m. kr.

Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokki sem tekinn hefur verið
til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er stefnt
á að næsta útboð sértryggðra skuldabréfa fari fram þann 7. september
næstkomandi. 

Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
17.820 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
54.980 m. kr. 

Nánari upplýsingar veitir Kristín Erla Jónsdóttir, fjármögnun Arion banka,
kristin.erla.jonsdottir@arionbanki.is , s: 444 6272