2016-02-18 17:13:02 CET

2016-02-18 17:13:02 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Sláturfélag Suðurlands svf. - Annual report (is)

Sláturfélag Suðurlands - Afkoma ársins 2015


Afkoma ársins 2015

  -- Tekjur ársins 10.701 m.kr. en 10.628 m.kr. árið 2014
  --   230 m.kr. hagnaður á árinu á móti 433 m.kr. árið áður
  --   EBITDA afkoma var 726 m.kr. en 950 m.kr. árið 2014
  --   Eigið fé 4.189 m.kr. og eiginfjárhlutfall 53%



Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélaga þess, Reykjagarðs hf. og Hollt & Gott ehf.  Sláturfélag
Suðurlands keypti 50% eignarhluta í Hollu & Góðu ehf. þann 31. ágúst 2015 og er
félagið hluti af samstæðunni frá þeim tíma. Hafa þarf það í huga við samanburð
rekstrar- og efnahagsliða milli ára. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2015 var 230 m.kr. skv.
rekstarreikningi.  Árið áður var 433 m.kr. hagnaður.  Eigið fé er 4.189 m.kr.
og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 53%. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 10.701 m.kr. árið 2015, en
10.628 m.kr. árið áður og hækka því um tæpt 1%.  Aðrar tekjur voru 21 m.kr. en
24 m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 5.594 m.kr. en 5.735 m.kr. árið áður.  Launakostnaður
var 2.555 m.kr. og hækkaði um rúm 11%, annar rekstrarkostnaður var 1.848 m.kr.
og hækkaði um tæp 11%.  Afskriftir hækkuðu um tæp 6%.  Rekstrarhagnaður án
fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 396 m.kr., en 638 m.kr. árið áður. 
Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 726 m.kr.  en var 950
m.kr. árið áður. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 113 m.kr., en voru 117 m.kr. árið
áður.  Gengishagnaður var 1 m.kr. samanborið við 13 m.kr. gengistap árið áður. 

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 1 m.kr. en árið áður um 14
m.kr.  Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 55 m.kr. en 101 m.kr. árið áður. 
Hagnaður af rekstri ársins var 230 m.kr. en 433 m.kr. árið áður. Minni hagnaður
milli ára skýrist m.a. af lakari afkomu dótturfélaga og afurðahluta félagsins. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 724 m.kr. árið 2015 samanborið við
948 m.kr. árið 2014.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2015 voru
7.967 m.kr. og eiginfjárhlutfall 53%, óbreytt frá fyrra ári.  
Veltufjárhlutfall var 2,1 árið 2015, en 2,5 árið áður. 

Fjárfest var á árinu fyrir 633 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 491
m.kr. árið áður.  Seldar voru eignir fyrir 11 m.kr.  Á árinu var fjárfest í
fasteignum fyrir 257 m.kr., vélum og tækjabúnaði fyrir 300 m.kr. og bifreiðum
76 m.kr. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2015 var í aprílmánuði greiddur
11,0% arður af B-deild stofnsjóðs alls 20 m.kr. og reiknaðir 5% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 16 m.kr. 

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North hjá NASDAQ OMX.  Viðurkenndir ráðgjafar
félagsins (e. Certified Advisors) eru Ágúst H. Ólafsson og Árni Jón Árnason hjá
Deloitte – first-north@deloitte.is.  Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu
á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu fyrri árshelmings ársins 2016
þann 25. ágúst 2016. 



Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 18. mars n.k. 
Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 12% arður af B-deild
stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 2%, alls 21,6 m.kr. eða 0,12 kr. á hvern
útgefin hlut og reiknaðir 5% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs,
alls 16,4 m.kr. 

Staða og horfur

Afkoma Sláturfélagsins versnaði milli ára en erfið staða er á kjötmarkaði.
Fjárhagsstaða félagsins er samt sem áður mjög sterk með 53% eiginfjárhlutfall
og veltufjárhlutfall 2,1. Árleg greiðslubyrði lána er lág miðað við
greiðslugetu félagsins og skuldahlutfall lágt. 

Áhrif af lokun á sölu kjöts til Rússlands og mikil verðlækkun á aukaafurðum og
gærum hafði neikvæð áhrif á rekstur afurðahluta félagsins á árinu 2015. Gert er
ráð fyrir að svo verði áfram á árinu 2016. 

Verkfall dýralækna á vordögum olli mikilli truflun og var afurðahluta félagsins
kostnaðarsamt. 

Staða lykilvörumerkja SS í kjötiðnaði er sterk og ímynd félagsins á markaði
góð. Samt sem áður er reiknað með að erfiðar markaðsaðstæður á kjötmarkaði hafi
neikvæð áhrif á afkomu kjötiðnaðar á árinu. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar og búvöruhluti innflutningsdeildar er vaxandi
í starfsemi félagins. Sala á áburði, kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum bænda
gengur vel og góð tækifæri til áframhaldandi vaxtar. 





Fjárhagsdagatal

Aðalfundur 2016, 18. mars 2016

Janúar – júní 2016 uppgjör, 25. ágúst 2016

Júlí – desember 2016 uppgjör, 16. febrúar 2017

Aðalfundur 2017, 17. mars 2017





Frekari upplýsingar veitir:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 – steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 – hjalti@ss.is