|
|||
![]() |
|||
2010-03-23 17:42:32 CET 2010-03-23 17:43:33 CET REGULATED INFORMATION N1 - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2009Afkoma N1 hf viðunandi í erfiðu efnahagsumhverfi. Hagnaður N1 hf. árið 2009 er 277,4 millj. kr. eftir skatta. Veltufé frá rekstri nam 1.793 millj. kr. en var 1.202 millj. kr. árið áður. Eigið fé félagsins er rúmlega 6,6 milljarðar í árslok 2009. N1 hf. lykilstærðir (þús kr.): Sjá viðhengi. Ársreikningur N1 hf árið 2009 Ársreikningur N1 hf. fyrir árið 2009 hefur verið staðfestur af stjórn félagsins og forstjóra. Ársreikningurinn er byggður á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Rekstur Rekstrartekjur félagsins nema 40.038 millj. kr. samanborið við 43.765 millj. kr. árið 2008. Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld nemur 3.455 millj. kr. samanborið við 3.408 millj. kr. árið 2008. Rekstrarhagnaður ársins nam 277 millj. kr. eftir skatta á móti 1.111 millj. kr. tapi árið 2008. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 1.600 millj. kr. árið 2009 en voru neikvæðir um 3.367 millj. kr árið 2008. Eignir Bókfært verð eigna félagsins í lok árs 2009 nam 25.292 millj. kr. samanborið við 25.298 millj. kr. í árslok 2008. Eigið fé Eigið fé þann 31. desember 2009 nam 6.638 millj. kr. samanborið við 6.361 millj. kr. þann 31.12.2008. Skuldir Í lok ársins námu heildarskuldir og skuldbindingar 18.654 millj. kr. og þar af námu langtímaskuldir 7.496 millj. kr. Staða og horfur Rekstrarhorfur árið 2010 eru áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Kjarnastarfsemi félagsins hefur gengið vel miðað við aðstæður það sem af er árinu 2010 en áfram má búast við erfiðu rekstrarumhverfi. Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 440 1000 |
|||
|