|
|||
2010-03-25 16:02:54 CET 2010-03-25 16:03:57 CET REGULATED INFORMATION Vopnafjarðarhreppur - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2009Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2009 var lagður fram til fyrri umræðu í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps fimtudaginn 25. mars 2010. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn, síðari umræða verður um ársreikninginn á hreppsnefndarfundi fimmtudaginn 8. apríl nk. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2009 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar, sem falla undir A-hlutastarfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A -og B- hluta sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Til A-hluta þ.e Sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru eignasjóður og þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps. Til B- hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B- hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir, Félagsheimilið, Lyfsala , Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf. Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsreglu og í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga nr. 144/1994, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000 og auglýsingar félagsmálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. Ársareikningurinn byggir í meginatriðum á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Helstu niðurstöður ársreiknings eru eftirfarandi: Sjá viðhengi. |
|||
|