|
|||
2010-12-10 16:39:11 CET 2010-12-10 16:40:11 CET REGULATED INFORMATION Reykjaneshöfn - FyrirtækjafréttirNý tillaga Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af ReykjaneshöfnÍ kjölfar fundar í dag leggur Reykjaneshöfn hér með fram nýja tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga. Tillagan tekur tillit til þeirra sjónarmiða sem lágu að baki því að einn eigenda fjármálagerninga hafnaði fyrri tillögu og bætir við ákvæði um upplýsingagjöf, en er að öðru leyti efnislega samhljóma fyrri tillögu. Tillagan er sem hér segir: 1. Enginn lánveitandi eða eigandi fjármálagernings fær greiðslur vaxta eða afborgana fyrr en 1. maí 2011, með þeirri undantekningu að eigandi víxla fær vaxtagreiðslu. Frestaðar greiðslur afborgana og vaxta bætast við höfuðstól og koma til greiðslu á venjulegum afborgunum hvers bréfs. 2. Yfirstandandi fjárfestingarverkefni verða stöðvuð og engin ný verkefni sett í gang, með þeirri undantekningu að Reykjaneshöfn er heimilt að ráðast í jarðvegsskipti á einstökum lóðum við sölu þeirra. Stöðvunin gildir fram til 1. maí 2011. 3. Ekki verður stofnað til nýrrar lántöku né veð veitt í eignum, með þeirri undantekningu að heimilt er að Reykjanesbær láni Reykjaneshöfn til greiðslu vaxta af víxlum sbr. 1. tölulið tillögu. 4. Allir kröfuhafar, nema eigandi víxla, fá rétt til gjaldfellingar krafna sinna ef skuld eða skuldbinding útgefanda við aðra umfram 5 milljónir króna er vanefnd og gjaldfelld af þeim sökum, þó með fyrirvara um að vanefndin stafi af réttlætanlegum mótmælum Reykjaneshafnar. 5. Allir lánveitendur og eigendur fjármálagerninga utan Lánasjóðs Sveitarfélaga verða að samþykkja tillöguna. 6. Reykjaneshöfn mun upplýsa lánveitendur og eigendur fjármálagerninga með formlegum hætti um stöðu og árangur af stefnumótunarvinnu eigi síðar en 8. mars 2011. 7. Frestur til að samþykkja tillögu er til og með 22. desember 2010. Tilkynnt verður um afdrif tillögunnar þann 23. desember 2010. Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222. |
|||
|