2010-11-01 18:26:52 CET

2010-11-01 18:27:15 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Umbreyting og flutningur á hlutabréfum frá Íslandi til Danmerkur - Nýjar upplýsingar


                                           Tilkynning frá Össuri hf. Nr. 22/2010

                                                                1. nóvember 2010



Að  beiðni  Össurar  hefur  Seðlabanki  Íslands  veitt öllum hluthöfum, sem hafa
eignast  hlutabréf  í  Össuri  fyrir  1. nóvember  2010, heimild til að umbreyta
bréfunum  og flytja þau af íslenska markaðnum  yfir á danska markaðinn. Áður var
heimildin  bundin við bréf sem voru keypt fyrir 1. apríl 2009. Enn þarf sérstaka
undanþágu  frá Seðlabanka  Íslands vegna  umbreytingu og  flutnings á hlutum frá
Danmörku til Íslands.

Nánari  upplýsingar  um  hvernig  er  hægt  að  umbreyta  og  eiga viðskipti með
hlutabréf Össurar er að finna á heimasíðu félagsins: www.ossur.is/investors



[HUG#1457782]