|
|||
2011-04-29 13:45:19 CEST 2011-04-29 13:46:19 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124Útboð á verðtryggðum og óverðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKS 21 0414: Alls bárust 28 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.955 m.kr. að nafnverði. 24 tilboðum var tekið fyrir 5.605 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 109,48 (2,70% ávöxtunarkröfu). RIKB 31 0124: Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.975 m.kr. að nafnverði. 17 tilboðum var tekið fyrir 6.325 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 93,99 (7,07% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 3. maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 4. maí 2011. |
|||
|