2013-09-17 21:43:22 CEST

2013-09-17 21:44:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. gerir breytingar á kauptilboði í hlutabréf í Eik fasteignafélagi hf.


Vísað er í áður senda tilkynningu um  tilboð Regins hf. í allt að 100% hlutfjár
í Eik fasteignafélagi hf., dags. 5. september sl.  Eftir að Reginn hf. lagði
tilboðið fram hafa verið haldnir kynningarfundir með tilboðshöfum. Á þeim
fundum hafa komið fram ábendingar og athugasemdir sem Reginn hf. hefur tekið
til skoðunar. Vegna þessa sendi Reginn hf. bréf eftir lokun markaðar í dag 17.
september til stjórnar og hluthafa Eikar fasteignafélags um  breytingar  í
tengslum við tilboðsgerðina. 



Reginn hf. fellur frá þeirri forsendu sem kemur fram í kauptilboðinu að
rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar og afskriftir (Ebitda) verði a.m.k. 1.450
m.kr. Gengur Reginn hf. því út frá því við tilboðið að leigutekjur félagsins á
ársgrundvelli verði um 1.900 m.kr. miðað við núverandi eignasafn,
langtímaskuldir séu ekki yfir 14.900 m.kr. þann 30. júní sl. og taki ekki öðrum
breytingum en verðlagsbreytingum frá þeim tíma og að SMI ehf. eða fasteignir í
þess eigu séu ekki meðal eigna Eikar. Varðandi framangreindar forsendur um
fjárhagsleg atriði lítur Reginn hf. svo á að gögn sem gefi nægilega trygga
vísbendingu um þessi atriði muni liggja fyrir við gerð áreiðanleikakannana. 



Að auki hefur Reginn hf. fallið frá fyrirvara um að Reginn hf. áskilji sér rétt
til að lækka tilboðsverðið einhliða ef niðurstöður áreiðanleikakannana leiða í
ljós atriði sem breyta verðmatinu. Komi til þess að Reginn hf. telji eftir gerð
áreiðanleikakannana að tilboðsverðið sé of hátt þar sem forsendur sem gefnar
eru hafa ekki staðist, áskilur Reginn hf. sér rétt til að falla bótalaust frá
tilboðinu. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262