2008-10-21 13:47:29 CEST

2008-10-21 13:48:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Askar Capital hf. - Fyrirtækjafréttir

- Vegna frétta í fjölmiðlum af endurhverfum viðskiptum


Askar Capital hf. (Askar) hefur átt í endurhverfum viðskiptum við Seðlabanka
Íslands með skuldabréf Glitnis banka. Útistandandi fjárhæð er tæpir sex
milljarðar. Askar getur lagt fram viðbótartryggingar vegna veðkalls
Seðlabankans sem gert var þann 20. október 2008 en Seðlabankinn þarf að leggja
mat á veðhæfni eignarinnar. Askar hefur óskað eftir fundi með Seðlabankanum
vegna þessa. Þá hefur Askar möguleika á að lýsa yfir skuldajöfnun við Glitni en
skuld Askar við Glitni er hærri en framangreint skuldabréf. 

Vegna óvissu er ekki unnt á þessu stigi að meta til fullnustu áhrif þessara
aðgerða á fjárhagsstöðu Askar en verðlækkun skuldabréfanna getur haft verulega
neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu félagsins.