2016-10-26 18:43:12 CEST

2016-10-26 18:43:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Ársreikningur

Tekjuvöxtur 14% á þriðja ársfjórðungi og hagnaður 93 mkr


EBITDA 686 mkr fyrstu mánuði ársins 2016

REYKJAVÍK - 26. október 2016 - Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði
2016 

Helstu upplýsingar:

  -- Sala á vöru og þjónustu nam 3.429 mkr á þriðja ársfjórðungi (13,6%
     tekjuvöxtur frá F3 2015) og 10.555 mkr á fyrstu níu mánuðum ársins (9,2%
     tekjuvöxtur frá fyrstu níu mánuðum 2015) [F3 2015: 3.019 mkr, 9M 2015:
     9.669 mkr]
  -- Framlegð nam 860 mkr (25,1%) á þriðja ársfjórðungi og 2.676 (25,4%) fyrstu
     níu mánuði 2016 [F3 2015: 828 mkr (27,4%), 9M 2015: 2.465 mkr (25,5%)]
  -- EBITDA nam 247 mkr (7,2%) á þriðja ársfjórðungi og 686 mkr (6,5%) fyrstu
     níu mánuði ársins [F3 2015: 240 mkr (8,0%), 9M 2015: 693 mkr (7,2%)]
  -- Heildarhagnaður á þriðja ársfjórðungi var 93 mkr og 204 mkr fyrstu níu
     mánuði ársins [F3 2015: 82 mkr, 9M 2015: 193 mkr]
  -- Eiginfjárhlutfall var 32,5% í lok þriðja ársfjórðungs en var 30,8% í lok
     annars ársfjórðungs
  -- Applicon AB selur og innleiðir kjarnabankakerfi hjá SBAB Bank AB í Svíþjóð

 Finnur Oddsson, forstjóri:

„Rekstur Nýherjasamstæðunnar var á áætlun á þriðja fjórðungi og jákvætt að
tekjuvöxtur var meiri á fjórðungnum heldur en fyrripart árs.  Afkoman á árinu
er viðunandi, svipuð og í fyrra, en það sem við horfum einnig jákvætt til er
það að vaxtaberandi skuldir eru að lækka umtalsvert og eiginfjárstaða félagsins
heldur áfram að styrkjast. 

Almennt gengur rekstur Nýherja og dótturfélaga vel, sérstaklega í
hugbúnaðartengdri starfsemi þar sem tekjuvöxtur hefur verið umtalsverður.  Til
að mynda voru tekjur Tempo á fjórðungnum USD 3,2 m og USD 9,4m á árinu, sem er
43% aukning á þriðja ársfjórðung.  Við sjáum svo einnig töluverða tekjuaukningu
hjá Applicon AB, TM Software og hugbúnaðarsviði Nýherja. Það er því góð
eftirspurn eftir okkar lausnum og eitt helsta viðfangsefnið okkar er að ná að
anna henni en jafnframt gæta að kostnaði í rekstrinum. 

Það voru svo afar góð tíðindi að Applicon í Svíþjóð gekk frá stórum samningi í
lok fjórðungsins um sölu og innleiðingu á SAP kjarnabankalausnum fyrir SBAB
Bank, sem er 5. stærsti bankinn í Svíþjóð.  Þetta er tímamótasamningur sem
hefur verið lengi í undirbúningi og byggir á þekkingu og lausnum sem þróaðar
hafa verið innan okkar vébanda á undanförnum árum.  Að innleiðingu lokinni mun
Applicon reka og viðhalda bankakerfum fyrir tvo af tíu stærstu bönkum í
Svíþjóð, en í því felst mikil viðurkenning á þeirri reynslu og þeim gæðum
hugbúnaðarlausna sem  Applicon  hefur yfir að ráða fyrir fjármálamarkaði. 

Öll félög samstæðunnar skila jákvæðri afkomu og horfur í rekstri eru ágætar.“

Nánari upplýsingar

Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen
framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is. 

Sjá viðhengi.