2016-10-26 18:50:54 CEST

2016-10-26 18:50:54 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Marel hf. - Ársreikningur

Marel 3F 2016-Góður árangur með 14,2% EBIT


Marel kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2016
(Allar upphæðir í evrum)


Góður árangur með 14,2% EBIT

  --  Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2016 námu 234,8 milljónum evra [3F 2015:
     189,1m]. Pro forma tekjur á þriðja ársfjórðungi 2015 námu 229,7 milljónum
     evra.
  --  EBITDA á þriðja ársfjórðungi 2016 var 41,5 milljónir evra sem er 17,7% af
     tekjum [3F 2015: Leiðrétt EBITDA** 31,6m, 16,7%]. Pro forma leiðrétt
     EBITDA** á þriðja ársfjórðungi 2015 nam 41,4 milljónum evra eða 18,0% af
     tekjum.
  --  EBIT* á þriðja ársfjórðungi 2016 var 33,4 milljónir evra, sem er 14,2% af
     tekjum [3F 2015: Leiðréttur rekstrarhagnaður EBIT** 24,2m, 12,8% af
     tekjum]. Pro forma leiðrétt EBIT** á þriðja ársfjórðungi 2015 nam 31,6
     milljónum evra eða 13,8% af tekjum.
  --  Hagnaður þriðja ársfjórðungs 2016 nam 17,3 milljónum evra [3F 2015:
     14,7m]. Hagnaður á hlut var 2,42 evru sent [3F 2015: 2,07 evru sent].
  --  Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 33,2 milljónum
     evra á þriðja ársfjórðungi 2016 [3F 2015: 29,7m]. Skuldahlutfall (nettó
     skuldir/EBITDA) í lok þriðja ársfjórðungs 2016 er 2,6x.
  --  Pantanabókin stóð í 305,1 milljónum evra við lok þriðja ársfjórðungs 2016
     samanborið við 306,5 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs 2016 [3F
     2015: 187,7m]. Pro forma pantanabók við lok þriðja ársfjórðungs 2015 var
     303,6 milljónir evra.

Marel heldur áfram að skila góðri rekstrarniðurstöðu. Tekjur þriðja
ársfjórðungs námu 235 milljónum evra með 14,2% EBIT*. Sjóðstreymi frá rekstri
er áfram sterkt sem leiðir til þess að skuldahlutfallið í lok þriðja
árs-fjórðungs 2016 er 2,6x. 


Pantanir þriðja ársfjórðungs 2016 námu 233 milljónum evra og eru samtals 718
milljónum evra frá áramótum (pro forma). Sala á staðlaðri vöru og varahlutum
var sterk í öllum iðnuðum.  Kjúklingaiðnaðurinn tryggði sér fjölmörg meðalstór
og stærri verkefni fyrir viðskiptavini á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama
tímabili hafa markaðsaðstæður í kjöt- og fiskiðnaði verið lakari fyrir stærri
verkefni. Kjötiðnaðurinn byrjaði að taka við sér á þriðja ársfjórðungi og
tryggði sameinað söluteymi MPS og Marel verkefni í heildarlausnum fyrir
viðskiptavini í kjötiðnað í Evrópu og Kína. Í byrjun fjórða ársfjórðungs
tryggði Marel sér tímamótaverkefni í laxaiðnaði í Noregi. 


Pro forma tekjur Marel á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 námu 733 milljónum evra
 með 108,4 milljónum evra í rekstrarhagnað og 14,8% EBIT*. Marel gerir ráð
fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*) sameinaðs félags
á árinu 2016. 


Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Við erum ánægð með niðurstöðu þriðja ársfjórðungs 2016. Teymið er einbeitt og
árangursdrifið sem skilar sér í sterkri rekstrarniðurstöðu og nálægt 15%
rekstrarhagnaði fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Við höldum áfram að kynna til
leiks fjölmargar nýjar og skilvirkar lausnir fyrir viðskiptavini okkar og
fjárfesta í innviðum fyrirtækisins  til að undirbúa framtíðarvöxt og
virðisaukningu. 


Á heildina litið er útlit fyrir að markaðsaðstæður fyrir stærri verkefni sé að
taka við sér. Vegna almennra efnahagsaðstæðna er þó erfitt að segja til um
tímasetningu á stærri verkefnum. 


Samruni MPS og Marel gengur vel og samkvæmt áætlun. Við höfum sameinað og
þjálfað söluteymi okkar í kjötiðnaði. Þetta frábæra teymi hefur nú tryggt
verkefni í heildarlausnum fyrir viðskiptavini okkar víða um heim. Það er ljóst
að við erum sterkari saman og betri í að mæta þörfum viðskiptavina okkar.“ 


Horfur
Marel gerir ráð fyrir hóflegum innri vexti í tekjum og rekstrarhagnaði (EBIT*)
sameinaðs félags á árinu 2016. 


Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða
um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni
arðsemi. Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur
nemi 4-6% á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en
markaðurinn. 


Langtímahorfur Marel eru góðar en til skemmri tíma litið hefur óvissa í
heimsbúskapnum aukist. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði
breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í
pöntunum og tímasetninga stærri verkefna. 


Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta
uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á
heimasíðu Marel: http://marel.com/corporate/investor-relations/publications 
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.


Kynningarfundur 27. október 2016


Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 27. október
kl. 8:30 í húsnæði þess að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast. 


Birtingardagar fyrir reikningsárið 2017 og 2018
 4. ársfjórðungur 2016                                  8. febrúar 2017
 1. ársfjórðungur 2017                                  3. maí 2017
 2. ársfjórðungur 2017                                  26. júlí 2017
 3. ársfjórðungur 2017                                  25. október 2017
 4. ársfjórðungur 2017                                  31. janúar 2018


Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.


Frekari upplýsingar veitir:
Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður fjárfestatengsla og samskipta. Símar: 563-8626
og 853-8626