2009-08-31 18:48:37 CEST

2009-08-31 18:49:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Glitnir sjóðir - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur Verðbréfasjóði, Fjárfestingarsjóði og
Fagfjárfestasjóði hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2009. 

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2009 

•  Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuðina 2009 164 m.kr.
   samanborið   við 284 m.kr. fyrstu sex mánuðina 2008. 
•  Rekstrargjöld námu 386 m.kr. samanborið við 722 m.kr. árið áður, og lækkuðu
   um 46,5% 

•  Hreinar rekstrartekjur námu 579 m.kr. samanborið við 1.054 m.kr. árið áður,
   drógust saman um 45,1% 

•  Eigið fé 30. júní 2009 nam 1.195 m.kr. en var 1.031 m.kr. í ársbyrjun

•  Heildareignir félagsins 30. júní 2009 námu 1.675 m.kr. en voru 2.470 m.kr. í
   árslok 2008. 

•  Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
   fjármálafyrirtæki, var 175,5% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera
   lægra en 8,0%. 

•  Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 129.525 m.kr. í lok júní
   samanborið við 132.904 m.kr. í árslok 2008. 

•  Íslandssjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á 15 sjóðum, en einnig sér
   félagið um stýringu á einum verðbréfasjóði og einum vogunarsjóði í Glitnir
   Asset Management S.A. í Lúxemborg.  Heildareignir í stýringu Íslandssjóða
   hf. í Lúxemborg fyrstu 6 mánuðina nam 3.040 m.kr. í stað 2.433 m.kr. um
   áramót. 

•  Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
   árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning
   Verðbréfasjóða og Fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í
   samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar
   eru af Fjármálaeftirlitinu. 

•  Athygli er vakin á því að fjárfestingarstefna er hlutlaus staða viðkomandi
   sjóðs og til að ná betri árangri í stýringu eru vikmörk notuð sem er
   tilgreint hámark og lágmark. Allur þessi rammi er fjárfestingarstefna
   viðkomandi sjóðs. 
   Öllum sjóðum nema Sjóði 6 er stýrt skv. virkri stýringu til að ná betri
   árangri í ávöxtun en stefnan (hlutlaus) gerir ráð fyrir.
•  Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. sem telur að
   reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6
   mánuðum ársins 2009. 


Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi.


Afkoma sjóðsdeilda Verðbréfasjóða fyrstu sex mánuði ársins

•  Tap á Verðbréfasjóðum fært á hlutdeildarskírteini á fyrstu 6 mánuðum ársins
   nam 6.396 m.kr. samanborið við 8.823 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuði ársins
   2008. 

•  Hrein eign Verðbréfasjóða nam 82.008 m.kr. samanborið við 80.032 m.kr. í
   árslok 2008.

Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi.


Afkoma Fjárfestingarsjóða fyrstu sex mánuði ársins

•  Tap á Fjárfestingarsjóðum fært á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina
   nam 2.274 m.kr. samanborið við 12.689 m.kr. hagnað fyrstu 6 mánuðina 2008. 

•  Hrein eign Fjárfestingarsjóða nam 1.786 m.kr. samanborið við 6.232
   m.kr. í árslok 2008. 

Lykiltölur í m.kr.: Sjá viðhengi.



Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá Eignastýringu Íslandsbanka,
Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 7. september 2009. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet
Hendriksdóttir, fram-kvæmda¬stjóri félagsins í síma 440-4917.