2009-08-31 19:01:17 CEST

2009-08-31 19:02:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta
ársins 2009 var 637 milljónir króna sem er í samræmi við áætlanir samstæðunnar.
Rekstrarafkoman var mun betri en á fyrri hluta ársins 2008.  Rekstrartekjur
hækkuðu um rúmlega 13,7% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um
rúmlega 6,6% og var regluleg starfsemi  fyrirtækisins í samræmi við áætlanir.
Afskriftir hækka milli tímabila um 102 milljónir vegna endurmats eigna í lok
árs 2008. 

Fjármagnsgjöld voru mun hærri á tímabilinu en áætlanir gerðu ráð fyrir og voru
875 milljónir króna en voru á sama tímabili árið áður 2.280 milljónir króna. 

Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru jákvæð um 38 milljónir króna. 

Samkvæmt rekstrarreikningi var tap á tímabilinu 164 milljónir króna.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.166
milljónir króna eða 28,1% af veltu tímabilsins, samanborið við 782 milljónir
eða 21,4%  af veltu á sama tímabili árið áður.  Hreint veltufé frá rekstri var
1.169 milljónir króna. 

Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2009 voru heildareignir RARIK 32.046
milljónir króna og heildarskuldir námu 18.269 milljónum króna. Eigið fé var
13.777 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 43,0%. 

Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum. 



Helstu stærðir samstæðureiknings, allar fjárhæðir í milljónum króna.: 
Sjá viðhengi. 

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2009 eru traustar, en afkoman á næstu tímabilum
ræðst hins vegar að verulegu leyti af stöðu gengis krónunnar og verðlagsþróun.
Gengi krónunnar hefur veikst það sem af er ári en vextir erlendra lána hafa
lækkað og má gera ráð fyrir að sú lækkun haldist a.m.k. út árið. Gert hefur
verið ráð fyrir samdrætti í orkusölu og því hefur verið gripið til ráðstafana
til að draga úr fjárfestingum í dreifikerfum og almennum rekstrarkostnaði. Ef
gengi krónunnar styrkist ekki, eins og gert var ráð fyrir í áætlunum fyrir árið
2009, má búast við að rekstur félagsins verði í járnum á síðari hluta ársins og
árið í heild gert upp með tapi sem skýrist fyrst og fremst af fjármagnsliðum. 

Á tímabilinu var lokið við 4 milljarða innlent skuldabréfaútboð og unnið er að
frekari fjármögnun félagsins til ársins 2012. Sú vinna er unnin í samstarfi við
viðskiptabanka félagsins og gengur samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að
niðurstaða náist í septembermánuði. Þá eru viðræður í gangi vegna almennra
skilmála í lánasamningi við erlendan aðila, sem félagið uppfyllti ekki að öllu
leyti í lok árs 2008 vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Niðurstaða í þeim
viðræðum mun liggja fyrir í lok október. 

Árhlutareikningur RARIK 1. janúar til 30. júní 2009 var samþykktur á fundi
stjórnar þann 31. ágúst 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma
528-9000.