2016-03-17 15:55:17 CET

2016-03-17 15:55:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Niðurstöður hluthafafundar

Kvika banki hf.: Niðurstöður aðalfundar Kviku banka hf.


Aðalfundur Kviku banka hf. var haldinn fimmtudaginn 17. mars 2016 á skrifstofu
félagsins í Reykjavík.



Helstu niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

1. Ársreikningur vegna ársins 2015 var samþykktur eins og hann var lagður fram.

2. Ákvörðun um greiðslu arðs var frestað þar til niðurstöður tillögu um lækkun
hlutafjár, sbr. liður 4 hér að neðan, liggja fyrir.

3. Samþykktar voru breytingar á samþykktum félagsins. Meðal breytinga sem
samþykktar voru er að stjórnarmönnum félagsins er fækkað úr sjö í fimm. Þá var
stjórn félagsins heimilað að gefa út áskriftarréttindi. Hámarkshlutafjárhækkun
til að mæta útgáfu áskriftarréttindanna skal að hámarki vera að nafnvirði kr.
130.0000.000. Frestur til notkunar á heimildinni er til aðalfundar ársins 2017.

4. Samþykkt var tillaga um að stjórn félagsins verði falið að undirbúa lækkun á
hlutafé félagsins með hlutfallslega jafnri greiðslu til hluthafa, allt að kr.
1.000.000.000,-. Endanleg ákvörðun um lækkunina verður hjá hluthafafundi að
fenginni tillögu stjórnar.

5. Stjórnarkjör fór fram. Í aðalstjórn félagsins voru kjörin:

- Þorsteinn Pálsson

- Finnur Reyr Stefánsson

- Jónas Hagan Guðmundsson

- Inga Björg Hjaltadóttir

- Anna Skúladóttir


Til setu í varastjórn félagsins voru kjörin:

- Kristín Guðmundsdóttir

- Ármann Fr. Ármannsson


[HUG#1995677]