|
|||
![]() |
|||
2016-02-23 15:22:32 CET 2016-02-23 15:22:32 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Ársskýrsla/ársreikningurIslandsbanki hf. : Ársskýrsla og Áhættuskýrsla 2015Í dag var gefin út Ársskýrsla Íslandsbanka og Áhættuskýrsla fyrir árið 2015, en þar má finna ítarlega umfjöllun um stefnu og starfsemi bankans. Í ársskýrslunni er sérstaklega fjallað um um stefnuáherslur bankans og hvernig þær styðja við framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu og viðskiptamódel bankans. Með margföldun er lögð áhersla á að efla viðskiptatengsl við núverandi viðskiptavini og auka verðmætasköpun, með einföldun er lögð áhersla á skilvirkni og hagkvæmni og með heildun leggur bankinn áherslu á að vera fyrirmynd í umhverfinu með stefnu sinni í samfélagslegri ábyrgð. Yfirlitssíða fyrir Ársskýrsluna. Áhættuskýrslan veitir markaðsaðilum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu bankans og eiginfjárstöðu hans. Hægt er að nálgast bæði Ársskýrslu og Áhættuskýrslu sem viðhengi, en einnig má finna allar fjárhagsupplýsingar á vef fjárfestatengsla Íslandsbanka, www.islandsbanki.is/ir. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1988601] |
|||
|