|
|||
2013-03-22 18:06:49 CET 2013-03-22 18:07:49 CET REGULATED INFORMATION Reginn hf. - FyrirtækjafréttirTilkynning um undirritun leigusamnings við Verkís og kaup á tveimur fasteignafélögumEftir lokun markaðar 14. febrúar s.l. sendi Reginn hf., tilkynningu um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum um kaup á fjórum fasteignafélögum með fyrirvörum. Nú hefur öllum fyrirvörum verið eytt varðandi leigusamning og undirrituðu Reginn A1 ehf., dótturfélag Regins hf. og Verkfræðistofan Verkís hf., leigusamning um fasteignina að Ofanleiti 2 í dag 22. mars. Leigusamningurinn er til 20 ára. Með þessu móti verður Verkís þriðji stærsti leigutaki félagsins og leigusamningurinn með þeim lengstu hjá félaginu. Fasteignin Ofanleiti 2 er alls 8.012 m2 að stærð. Verkís er rótgróið ráðgjafafyrirtæki sem rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins. Öllum fyrirvörum hefur verið eytt hvað varðar kaup á fasteignafélögunum Stórhöfða ehf. og Goshóli ehf. Undirritaður var kaupsamningur milli Regins hf. og áðurnefndra fasteignafélaga í dag, 22 mars. Fasteignafélögin eiga hluta Suðurlandsbrautar 4, í Reykjavík. Stærð eignarhluta er 2.608 m2. Ekki hefur verið gengið frá kaupsamningi við fasteignafélögin Almenna byggingarfélagið ehf. og VIST ehf. Verið er að vinna áfram í því máli og verður sú niðurstaða tilkynnt þegar hún liggur fyrir. Kaup þessi fylgja fjárfestingastefnu Regins sem felur í sér að auka hlut félagsins í skrifstofuhúsnæði. Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|