|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-03-31 20:08:16 CEST 2017-03-31 20:08:16 CEST REGULATED INFORMATION Byggðastofnun - ÁrsreikningurByggðastofnun - Ársreikningur 2016Ársreikningur Byggðastofnunar 2016 Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2016, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 31. mars 2017. Hagnaður ársins nam 157,1 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 22,74% en var 21,56% í lok árs 2015. Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2016 · Hagnaður ársins nam 157 milljónum króna. · Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 22,74% en skal að lágmarki vera 8% · Hreinar vaxtatekjur voru 454,8 milljónir króna eða 53,4% af vaxtatekjum, samanborið við 454,8 milljónir króna (54,3% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2015. · Laun og annar rekstrarkostnaður nam 428,2 milljónum króna samanborið við 392,6 milljónir árið 2015. · Eignir námu 14.140 milljónum króna og hafa lækkað um 276,6 milljónir frá árslokum 2015. Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.125 milljónir. · Skuldir námu 11.233 milljónum króna og lækkuðu um 433,7 milljónir á árinu. Um ársreikninginn Hagnaður ársins nam 157,1 milljón króna. Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána og matsbreytingu hlutabréfa. Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 22,74% í lok tímabilsins. Horfur Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfarm sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni. Fjármálaeftirlitið hefur heimild, samkvæmt 1. og 2. mgr. 84. gr. d laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, til að kveða á um sveiflujöfnunarauka sem er 0-2,5% af áhættugrunni. Í 1. mgr. 84. gr. e, sömu laga er kveðið á um 2,5% verndunarauka. Samkvæmt bréfi frá Fjármálaeftirlitinu, dagsettu 1. nóvember 2016, er kveðið á um 1% verndunarauka frá dagsetningu bréfsins. Verndunaraukinn hækkar í 1,75% þann 1. janúar 2017 og við bætist 1% sveiflujöfnunarauki 1. mars 2017. Samkvæmt yfirliti frá Fjármálaeftirlitinu verður samanlögð krafa um eiginfjárauka 3,75% þann 1. janúar 2018. Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is
Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|