|
|||
![]() |
|||
2017-03-31 21:26:25 CEST 2017-03-31 21:26:25 CEST REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 31. mars 2017, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2016 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Rvk. Meðstjórnendur Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Rvk. Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfjörður Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagörðum 12, Seltjarnarnes Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, Kópavogur
Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 31. mars 2017 samþykkir að greidd verði 1,00 kr. á hlut í arð til hluthafa eða 486,6 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 22. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 31. mars 2017, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 4. apríl. Arðleysisdagurinn er 3. apríl. Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 1.750.000, formaður fái þrefaldan hlut. Tillaga um endurskoðunarfélag Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 31. mars 2017 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
|
|||
|