2017-04-03 11:37:58 CEST

2017-04-03 11:37:58 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Skuldabréfaútboð RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2017 að efna til útboðs í skuldabréfaflokknum RVKN 35 1 miðvikudaginn 5.apríl. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð í skuldabréfaflokknum bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.

Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 3.940 m.kr. að nafnvirði.

Heimild til lántöku á árinu 2017 er 3.012 m.kr.

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 10.apríl 2017.

Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki og Kvika fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins og hafa einir rétt á tilboðsgerð. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 5. apríl.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

 

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321