2024-05-16 16:54:35 CEST

2024-05-16 16:54:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokknum LSS 39 0303 þann 15. maí 2024. Uppgjör viðskipta fer fram 21. maí 2024.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Jafnframt áskilur Lánasjóðurinn sér rétt til að selja meira en 10% ef eftirspurn er til staðar.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.055.000.000 á bilinu 3,55% - 3,61%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.315.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,58%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS 39 0303 fyrir ISK 120.000.000 að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 3,58%. Samþykkt viðbót nemur ISK 120.000.000 af nafnvirði. Útistandandi fyrir voru ISK 25.227.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 2.435.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 27.662.600.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949