2017-05-19 16:17:38 CEST

2017-05-19 16:17:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Niðurstöður fundar með skuldabréfaeigendum


Niðurstöður fundar Kviku banka hf. með skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum
KVB 15 01 sem haldinn var föstudaginn 19. maí 2017 kl. 13:00 í Borgartúni
25, 105 Reykjavík.


1. Ákveðið var að breyta skilmála í skuldabréfaflokknum KVB 15 01 um hækkun
heildarheimildar skv. útgáfusamningi þannig að skilmálinn verði framvegis á
eftirfarandi máta:

 (I) ,,Heildarheimild skv. samningi: 1.000.000.000,- kr. (krónur eittþúsund
milljónir)"



2. Ákveðið var að staðfesta heimild Kviku til að undirrita viðauka við
útgáfusamning skuldabréfaflokksins KVB 15 01, þar sem gerð er grein fyrir þeirri
breytingu sem samþykkt var á fundi skuldabréfaeigenda.



Einu fundargögnin voru viðauki við útgáfusamning skuldabréfaflokksins KVB 15 01.


Viðhengi: Viðauki við útgáfusamning

[]