2017-06-20 19:06:02 CEST

2017-06-20 19:06:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika gerir kauptilboð í allt útgefið hlutafé Virðingar



Tilkynning

                                                        Reykjavík, 20. júní 2017

            Kvika gerir kauptilboð í allt útgefið hlutafé Virðingar

Stjórn  Kviku hefur  gert kauptilboð  í allt  hlutafé Virðingar.  Ef af kaupunum
verður er stefnt að því að sameina félögin.

Kaupverð  samkvæmt tilboðinu  nemur 2.560 milljónum  króna og  verður greitt með
reiðufé. Kaupin eru háð ákveðnum skilyrðum, þar á meðal samþykki hluthafa beggja
félaga og samþykkis eftirlitsstofnana.

Stjórn  Virðingar  hefur  móttekið  kauptilboðið  og  ákveðið  að  beina því til
hluthafa félagsins.

Fyrir  nokkru síðan var  undirritaður samningur um  kaup Virðingar á ÖLDU sjóðum
hf.  Verði tilboði Kviku til hluthafa Virðingar hf. tekið, er sá samningur háður
endanlegu samþykki Kviku og hluthafa Öldu.

Kauptilboðið  gildir  til  kl.  16:00 þann  30. júní næstkomandi. Ef samþykki að
lágmarki  90% hluthafa  Virðingar  fæst  fyrir  þann  tíma  er  stefnt  að boðun
hluthafafundar í Kviku um miðjan júlí.

Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.


Um Kviku banka hf.
Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Forstjóri bankans er Ármann Þorvaldsson og formaður
stjórnar Þorsteinn Pálsson. Nánar á: www.kvika.is.

Um Virðingu
Virðing er alhliða verðbréfafyrirtæki sem veitir fjárfestingatengda þjónustu á
sviði eignastýringar, markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og reksturs
framtakssjóða. Hjá Virðingu starfa 31 sérfræðingur og hefur félagið starfsleyfi
sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME. Virðing er með ríflega
100 milljarða króna í eignastýringu og starfsemi í Borgartúni 29 í Reykjavík.
Forstjóri félagsins er Hannes Frímann Hrólfsson og formaður stjórnar er Kristín
Pétursdóttir. Nánar á www.virding.is

[]