2017-06-30 18:11:14 CEST

2017-06-30 18:11:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika banki hf. kaupir allt hlutafé í Virðingu hf.


                                                        Reykjavík, 30. júní 2017

               Kvika banki hf. kaupir allt hlutafé í Virðingu hf.

Eigendur  96,69% hlutafjár  í  Virðingu  hafa  samþykkt  tilboð stjórnar Kviku í
hlutafé  fyrirtækisins, en  skilyrði var  að tilboðið  yrði samþykkt af eigendum
meira  en 90% hlutafjár. Kaupverð  nemur 2.560 milljónum króna  og verður greitt
með  reiðufé. Kaupin eru  áfram háð samþykki  á hluthafafundi Kviku og samþykkis
eftirlitsstofnana.

Stefnt  er að því að sameina félögin  undir nafni Kviku. Með sameiningu Kviku og
Virðingar    verður   til   öflugt   fjármálafyrirtæki   sem   er   leiðandi   á
fjárfestingabankamarkaði.   Sameinað   félag  verður  eitt  það  umsvifamesta  í
eignastýringu  á Íslandi með um 235 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í
rekstri.


Nánari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.


Um Kviku banka hf.
Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 86 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Forstjóri bankans er Ármann Þorvaldsson og formaður
stjórnar Þorsteinn Pálsson. Nánar á: www.kvika.is.


[]