|
|||
2017-08-02 17:30:18 CEST 2017-08-02 17:30:18 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarKvika banki hf.: Kvika kaupir allt hlutafé í ÖlduKvika banki hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Öldu sjóðum hf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki eftirlitsstofnana. Alda rekur 11 verðbréfasjóði og aðra sjóði um sameiginlega fjárfestingu auk þess að vera söluaðili sjóða í umsjón Aberdeen Asset Management og Hermes Investment Management. Heildareignir í stýringu hjá Öldu nema 45 milljörðum króna og hjá félaginu starfa sex starfsmenn með mikla reynslu á sviði eignastýringar. Félagið hefur á undanförnum árum náð mjög góðum árangri í sjóðastýringu og umsvif þess aukist verulega. Kvika er eini sérhæfði fjárfestingabanki landsins með sterka stöðu á sviði markaðsviðskipta og öfluga eignastýringu, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfða lánastarfsemi og einkabankaþjónustu. Kvika festi á dögunum kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. með það að markmiði að sameina félögin. Kaupin á Virðingu hf. eru háð samþykki eftirlitsstofnana og eru nú til umfjöllunar hjá Fjármálaeftirlitinu og Samkeppniseftirlitinu. Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn umsvifamesti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í stýringu. Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf. í síma 540 3200. [] |
|||
|