2017-08-09 14:43:19 CEST

2017-08-09 14:43:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Hækkun hlutafjár Kviku banka hf.


Stjórn Kviku banka hf. samþykkti í dag, 9. ágúst 2017, að hækka hlutafé Kviku í
A-flokki um kr. 300.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta.

Ákvörðun stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins byggir á heimild hluthafafundar
sem haldinn var 14. júlí 2017, þar sem stjórn var heimilað að auka hlutafé
félagsins í A-flokki um allt að kr. 400.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra
hluta.

Hluthafar Kviku í A-flokki eiga forgangsrétt til áskriftar að nýjum hlutum og
verður sent bréf þess efnis til þeirra. Réttur hluthafa til að nýta sér
forgangsrétt sinn er til 24. ágúst.

Áætlað er að áskrift vegna nýrra hluta ljúki ekki síðar en þann 18. september
2017.

Andvirði hlutafjárhækkunarinnar verður nýtt til greiðslu kaupverðs alls
hlutafjár Virðingar hf. og Öldu sjóða hf. Umfang hækkunar hlutafjár miðast við
að kaupin hafi ekki teljandi áhrif á eiginfjárhlutfall Kviku.



Nánari upplýsingar veitir:

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka hf., í síma 540 3200.


[]