2017-10-13 21:40:53 CEST

2017-10-13 21:40:53 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Kvika kaupir Öldu sjóði og Hannes Frímann Hrólfsson hefur störf sem framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku


Kvika kaupir Öldu sjóði og Hannes Frímann Hrólfsson hefur störf sem
framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku

Gengið hefur verið endanlega frá kaupum Kviku banka hf. á Öldu sjóðum hf.
Tilkynnt var um undirritun kaupsamnings vegna Öldu í byrjun ágúst, en nú hefur
verið fallið frá öllum fyrirvörum og Alda verður dótturfyrirtæki Kviku í byrjun
næstu viku.

Þá hefur Hannes Frímann Hrólfsson látið af störfum sem forstjóri Virðingar og
tekið við sem framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku. Hannes hefur starfað á
fjármálamarkaði í hátt í tvo áratugi. Hann hefur verið forstjóri Virðingar frá
2014 en áður starfaði hann hjá Auði Capital frá 2012, lengst af sem forstjóri.
Fyrir þann tíma starfaði Hannes hjá Arion banka og var framkvæmdastjóri og
meðstofnandi Tinda verðbréfa.

Kvika gerði nýverið samninga um kaup á öllu hlutafé í Virðingu hf. og mun
Virðing sameinast Kviku á næstu vikum. Þar til sameiningin hefur gengið í gegn
mun Íris Arna Jóhannsdóttir, sem verið hefur yfirlögfræðingur Virðingar, gegna
starfi forstjóra Virðingar. Með kaupunum á Virðingu og Öldu verður Kvika einn
öflugasti aðili í eignastýringu á Íslandi með um 280 milljarða króna í
stýringu.


Um Kviku banka hf.

Kvika er eini sjálfstæði og sérhæfði fjárfestingabanki landsins. Bankinn sinnir
þörfum viðskiptavina á afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu
vöruframboði. Burðarás Kviku er öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár-
og innlánseigendum alhliða fjármálaþjónustu.

Hjá Kviku starfar samhentur hópur 105 sérfræðinga sem nær árangri í krafti
menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Eignarhald Kviku er gagnsætt
og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s. lífeyrissjóða,
fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.

[]