2018-06-20 11:00:00 CEST

2018-06-20 11:00:00 CEST


REGULATED INFORMATION

English
Kvika banki hf. - Inside information

Kvika banki hf.: Viljayfirlýsing um kaup Kviku banka á öllu útgefnu hlutafé GAMMA Capital Management hf.


Kvika banki hf. og hluthafar GAMMA Capital Management hf. („GAMMA“) hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup og sölu á öllu hlutafé GAMMA. Fyrirhuguð viðskipti eru háð ýmsum skilyrðum, svo sem niðurstöðu áreiðanleikakannana, samþykki eftirlitsaðila og samþykki hluthafafundar Kviku banka. Með breyttu eignarhaldi munu myndast enn frekari tækifæri í starfsemi GAMMA en félagið verður rekið áfram undir nafni GAMMA sem sjálfstætt dótturfélag Kviku banka. Markmið Kviku banka með kaupunum er að styrkja bankann enn frekar á sviði eigna- og sjóðastýringar og erlendrar starfsemi.

GAMMA er eitt öflugasta sjóðastýringarfélag landsins og fagnaði 10 ára afmæli nú nýverið. GAMMA býður upp á fjölbreytt úrval sjóða fyrir fjárfesta og almenning. Sjóðir GAMMA eru meðal stærstu fyrirtækjaskuldabréfasjóða á Íslandi og stærstu fjárfestar á íslenskum fasteignamarkaði. Sjóðirnir fjárfesta einnig í hlutabréfum, ríkisskuldabréfum, innlánum og fleiru, auk þess sem félagið hóf nýlega rekstur sjóða um erlendar fjárfestingar.  

Eigið fé GAMMA í árslok 2017 var 2.054 milljónir króna en þá höfðu ekki verið tekjufærðar 600 milljónir króna kröfur á sjóði í rekstri félagsins vegna árangurstenginga.  Eignir í stýringu hjá GAMMA námu 138 milljörðum króna í árslok 2017.

Kvika banki leggur áherslu á fjárfestingabankastarfsemi og er með sterka stöðu í eigna- og sjóðastýringu. Bankinn er einnig með öfluga starfsemi í markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi og einkabankaþjónustu.  Samanlagðar eignir í stýringu hjá Kviku banka og rekstrarfélögum í eigu bankans verða um 400 milljarðar króna gangi kaupin á GAMMA eftir.

Viljayfirlýsing aðila kveður á um að kaupverð fyrir allt útistandandi hlutafé GAMMA nemi 3.750 milljónum króna, m.v. stöðu félagsins í árslok 2017 og stöðu árangurstengdra þóknana sem eftir á að tekjufæra. Jafnframt kaupa núverandi hluthafar GAMMA tilteknar eignir af félaginu. Kaupverðið á GAMMA getur tekið breytingum til hækkunar og lækkunar eftir því hvernig rekstur og verðmæti eigna GAMMA þróast á næstu misserum. Kaupverðið samanstendur af reiðufé og hlutabréfum í Kviku banka, með eftirfarandi hætti:

  1. Reiðufé að fjárhæð 1.057 milljónir króna sem greiðist við frágang viðskiptanna og árangurstengd greiðsla, sem metin er á um 1.443 milljónir króna m.v. stöðu GAMMA í árslok 2017.
  2. Hlutafé í Kviku banka að nafnvirði 56.124.133 hluta sem greiðist við frágang viðskipta og árangurstengd greiðsla sem getur numið allt að 108.946.847 hlutum að nafnvirði.

Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA:

„Við þessi viðskipti mun GAMMA styrkjast og framtíð félagsins standa enn styrkari fótum. GAMMA mun áfram starfa á sama stað í Garðastræti 37 með sama markmið að leiðarljósi, að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi fjármálaþjónustu. Viðskiptavinir GAMMA munu finna að félagið verður enn öflugra þar sem í boði verður fjölbreyttari fjármálaþjónusta með auknu vöruframboði jafnt fyrir almenna fjárfesta sem og stofnanafjárfesta.”

Gísli Hauksson, annar stofnenda GAMMA og stærsti hluthafi félagsins:

,,Saga GAMMA hefur verið saga árangurs jafnt fyrir viðskiptavini félagsins sem og hluthafa. GAMMA hóf starfsemi með nokkur hundruð milljónir króna í stýringu en 10 árum seinna hefur félagið byggt upp, eingöngu með innri vexti, innlenda og erlenda sjóði sem eru um 138 milljarðar króna að stærð. Vöruþróun, nýjungar í fjárfestingum, ítarleg greiningarvinna og góð ávöxtun hefur verið lykilatriðið í vexti GAMMA. Metnaður og framsýni hefur einkennt eigendur og stjórnendur Kviku banka og tel ég að þeir muni leiða GAMMA áfram á þeirri braut til heilla fyrir hluthafa, viðskiptavini sem og starfsmenn GAMMA.”

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Kvika banki hefur verið í sókn á íslenskum fjármálamarkaði og þessi viðskipti munu efla bankann enn frekar. Til viðbótar við öfluga eigna- og sjóðastýringu þá er erlend starfsemi GAMMA einnig þáttur sem við horfum til. Samkeppni er að aukast og fjármálamarkaðir eru að opnast enn frekar. Til að mæta þeim breytingum sem eru í farvatninu erum við að fjölga valkostum fyrir viðskiptavini bankans.“

Nánari upplýsingar veita:
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku í síma 540-3200
Valdimar Ármann, forstjóri GAMMA í síma 519-3300