2019-10-14 18:11:05 CEST

2019-10-14 18:11:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 41. viku 2019 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.300.000 eigin hluti fyrir 96.495.000 kr. eins og hér segir:

Dagsetning TímiKeyptir
hlutir
Viðskipta-
verð
Kaup-
verð
Eigin hlutir
eftir viðskipti
8.10.201914:35300.00073,121.930.0007.200.000
9.10.201915:03300.00073,021.885.0007.500.000
10.10.201909:46300.00076,422.920.0007.800.000
10.10.201910:03100.00075,37.530.0007.900.000
11.10.201910:51300.00074,122.230.0008.200.000
Samtals 1.300.000 96.495.000 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. september 2019, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 1. september 2019.

Reitir hafa nú keypt samtals 8.200.000 hluti í félaginu sem samsvarar 41,00% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 609.125.000 krónum sem samsvarar 40,61% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Reitir eiga nú samtals 8.200.000 hluti, eða 1,19% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 20.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða 31. janúar 2020. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.