|
|||
![]() |
|||
2013-06-10 18:06:35 CEST 2013-06-10 18:07:36 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚTBOÐ RÍKISVÍXLA RIKV 13 0916 OG RIKV 13 1216Fimmtudaginn 13. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216 sem eru með gjalddaga 16. september og 16. desember 2013. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 18. júní 2013. Sótt verður um að RIKV 13 1216 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi miðvikudaginn 19. maí 2013. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|