|
|||
2015-02-10 19:51:50 CET 2015-02-10 19:52:51 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirAðalfundur Marel hf. 2015Aðalfundur Marel hf. 2015 Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, miðvikudaginn 4. mars nk., kl. 16:00. Dagskrá: -- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. -- Breyting á samþykktum félagsins: -- Grein 4.13 varðandi upplýsingar sem birta skal fyrir hluthafafundi og tímafresti þar að lútandi, í samræmi við grein 88. d. laga um hlutafélög nr. 2/1995. -- Önnur mál, löglega borin fram. Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 föstudaginn 27. febrúar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 22. febrúar. Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2014, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 10. febrúar 2015, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30. Stjórn Marel hf. |
|||
|