2017-08-22 18:52:40 CEST

2017-08-22 18:52:40 CEST


SÄÄNNELTY TIETO

Englanti Islanti
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.920 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru samtals 1.220 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 2,64%. Heildartilboð voru 1.320 m.kr. á bilinu 2,63% - 2,66%.
Heildarstærð flokksins verður 15.220 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 420 m.kr. á
ávöxtunarkröfunni 2,59%. Heildartilboð voru 600 m.kr. á bilinu 2,59% - 2,60%.
Heildarstærð flokksins verður 9.660 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt  er að töku skuldabréfanna til  viðskipta í Nasdaq Iceland þann 29. ágúst
næstkomandi.

Það  sem af er  ári 2017 hefur Íslandsbanki  gefið út sértryggð skuldabréf fyrir
32.480 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að
afloknu útboði verður að nafnverði 97.180 m.kr.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]