|
|||
![]() |
|||
2016-01-31 15:05:01 CET 2016-01-31 15:05:01 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : 95% hlutur afhentur Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinuGlitnir hefur nú undirritað samning um að afhenda Seðlabanka Íslands og íslenska ríkinu stöðugleikaframlag slitabúsins. Hluti af stöðugleikaframlaginu er 95% hlutur Glitnis í Íslandsbanka. Fyrir átti ríkið 5% hlut og mun bankinn því verða alfarið í eigu ríkisins. Þessi breyting er háð samþykki Samkeppniseftirlitsins og munu eigendaskiptin ekki eiga sér stað fyrr en það samþykki er fengið. Eins og fram hefur komið mun breytt eignarhald ekki hafa áhrif á daglega starfsemi Íslandsbanka og munu viðskiptavinir og starfsmenn ekki finna fyrir breytingum vegna þessa. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1982431] |
|||
|