|
|||
![]() |
|||
2008-01-03 16:55:39 CET 2008-01-03 16:55:39 CET REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Annar af tveimur framkvæmdastjórum Kaupthing Bank Luxembourg lætur af störfumJohnie W. Brøgger, framkvæmdastjóri Kaupthing Bank Luxembourg hefur látið af störfum hjá Kaupþingi að eigin ósk, til að sinna öðrum viðfangsefnum. Johnie Brøgger hefur undanfarin níu ár starfað sem framkvæmdastjóri Kaupthing Bank Luxembourg við hlið Magnúsar Guðmundssonar. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka „Johnie Brøgger hefur frá því að hann hóf störf hjá okkur í Lúxemborg gegnt mikilvægu hlutverki í uppbyggingu bankans þar og þeim mikla árangri sem náðst hefur í starfseminni. Ég vil fyrir hönd bankans þakka honum fyrir framlag hans og óska honum alls hins besta í því sem hann kann að taka sér fyrir hendur.“ Nánari upplýsingar veitir: Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Kaupþings í síma 444-6112 |
|||
|