|
|||
2024-07-04 11:10:00 CEST 2024-07-04 11:10:01 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfaNiðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 3.500 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25. Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggðu skuldabréfaflokkunum ARION CB 27 og ARION CBI 30 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 25 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,288 gegn kaupum í útboðinu. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 3.500 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 25. Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 10. júlí 2024. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. |
|||
|